Matreiðslubók/iðraeldur
Iðraeldur
breyta- 200gr suðusúkkulaði
- 100gr smjör
- 3 eldheitir chillípiprar, saxaðir smátt!
- 50gr heslihnetuflögur
- 80gr sykur
- 3 egg
- bræðið saman allt nema egg og sykur og kælið
- gott að gefa þessu svona klukkutíma til að malla og kólna
- þeytið saman egg og sykur
- blandið svo súkkulaðiblöndunni saman við
- setjið í form og inní heitan ofn 200°
- bakið í ~ hálftíma
- á að vera blautt og fljótandi innst - gómsætt og geggjað með ítölskum ís