Matreiðslubók/Speltbrauð

Speltbrauð

  • 5 dl spelt
  • 1 dl sólblómafræ, sesamfræ eða kókosmjöl
  • 3 tsk. vínsteinslyftiduft
  • ½ -1 tsk. sjávarsalt
  • 1½ - 2 dl. AB-mjólk eða mjólk
  • 1½ - 2 dl. sjóðandi heitt vatn

Aðferð

breyta
  • Blandið þurrefnum saman í skál.
  • Hellið vökvanum út í og blandið varlega saman.
  • Á þessu stigi er hægt að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið, t.d. sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir.
  • Setjið deigið í smurt brauðform og bakið í 25-30 mín við 200C.