Matreiðslubók/Spínatsalat
Spínatsalat
- 1 kassi frosið spínat
- rúmlega 1/2 pk púrrulaukssúpa
- 1 dós water chestnuts
- 1 dós sýrður rjómi
- 4 hvítlauksrif (má vera meira)
- Worchesterhiresósa - skvetta
- soya sósa - skvetta
- 2 - 4 msk mayonnaise ef þurfa þykir (ef jukkið er þurrt)
Kreistið vel vatnið af spínatinu. Saxið water chestnuts smátt og pressið hvítlauksrifin. Setjið svo allt saman í matvinnsluvél og mixið saman.
Flott að skera lok af litlum súpubrauðum, taka innan úr þeim og fylla þau með spínatsalatinu. Berið fram með nachos.