Matreiðslubók/Smjördeigssnúðar með áleggi
Smjördeigssnúðar með áleggi
- 1 pakki smjördeig
- 1 egg
- 10-15 pepperonisneiðar eða 75-100 g skinka; skorið smátt
- 1-200 g rifinn ostur
Aðferð
breytaSmjördeiginu leyft að þiðna og flatt út í rétthyrning um 20 cm á breidd. Ein breiðari hliðin pensluð með egginu. Álegginu dreift á deigið (ekki penslunina), það vafið í smjörpappír og kælt í 2-3 tíma. Ofn hitaður í 200 gráður C og deigið skorið í 1 cm þykkar sneiðar. Penslað að ofan með eggi og bakað í ~15 mín eða þar til þeir eru orðnir gylltir að ofan.