Matreiðslubók/Súkkulaðikaka með banönum

Súkkalaðikaka með banönum er fínn eftirréttur; mjúk og bragðgóð.

  • 150 g púðursykur
  • 150 g smjör
  • 150 g súkkulaði, dökkt
  • 3 egg
  • 2 bananar, vel þroskaðir, stappaðir
  • 200 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft

Aðferð

breyta

Ofninn hitaður í 150 gráður C. Púðursykur, smjör og súkkulaði sett í pott og hitað rólega þar til allt er bráðið og samlagað; hrært oft á meðan. Tekið af hitanum og eggjum og bananamauki hrært saman við og síðan hveiti og lyftidufti. Sett í smurt og pappírsklætt jólakökuform, fremur lítið, og bakað í um 1 klst. eða þar til kakan er orðin svampkennd. Látin kólna ögn í forminu og síðan hvolft á grind.