Matreiðslubók/Rúllubrauð með fyllingu
Rúllubrauð með fyllingu er einfalt að baka og hægt að nota nokkurnvegin hvaða fyllingu sem er. Meðal annars má gera úr því ólífubrauð og hvítlauksbrauð.
Brauð
breytaInnihald
breyta- 3 tsk. þurrger
- 3 dl. volgt vatn
- 1/4 dl. olía
- 1 tsk. salt
- u.þ.b. 3 1/2 bolli hveiti
Aðferð
breyta- Þurrgeri blandað saman við vatn og olíu.
- Salti bætt við.
- Hveiti sett út í og hrært vel saman við á meðan.
- Látið lyftast á heitum stað, svo sem vaski fullum af heitu vatni.
- Þegar það er búið að lyftast er það hnoðað og flatt út í ílangann rétthyrning.
Fylling
breytaFyllingin getur, eins og áður sagði, verið margskonar, hér eru tvö dæmi:
Ólífubrauð
breyta- 2 dl. ostur
- 15 ólífur
Brauð með sólþurrkuðum tómötum
breyta- 2 dl. ostur
- 10 sólþurrkaðir tómatar
- 8 ólífur
- Hvítlaukssalt
- Basilíka
Aðferð
breyta- Því sem á að vera í fyllingu dreift jafnt yfir útflatt brauðið.
- Öllu saman rúllað upp.
- Látið lyftast á heitum stað aftur (eða látið í kaldan ofn meðan ofninn er að hitast).
- Látið bakast í miðjum ofni við 180°C í um það bil 30 mínútur.