Matreiðslubók/Marmarakaka
Marmarakaka er klassísk en góð og er einkar auðvelt að baka hana í amstri dagsins.
Innihald
breyta- 500 gr. hveiti
- 300 gr. smjörlíki
- 5 dl (400 gr.) sykur
- 5 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 2 dl. mjólk
- Kakó
- Vanilludropar
Aðferð
breyta- Egg og sykur þeytt fyrst.
- Öllu öðru bætt í nema kakóinu.
- 1/3 hluti tekinn úr og sett smá kakó í þann hluta.
- Stærri hlutinn settur í form og gerður skurður í mitt deigið endilangt. Kakódeiginum hellt þar ofan í og falið með smá ljósu deigi.
- Bakað við 180°C í ca. 60 mínútur.