Matreiðslubók/Makkarónu-Pönnu-Pizza

Fyrir hvern er fæðan?

breyta

Það þykja öllum flatbökur góðar en okkur er því miður ekki öllum það endilega til lista lagt að útbúa eina slíka með hefðbundna móti. Hér er á ferðinni réttur sem að er hvort tveggja í senn skemmtileg tilbreyting fyrir ástríðukokkinn og sem að getur ekki klikkað fyrir hvern þann sem stígur sín fyrstu skref í eldhúsinu. Þá er það ekki verra fyrir svanga að herlegheitin geta verið tilbúin á disk innan við klukkustund frá því eldamennska hefst.

Hráefni

breyta
  1. Hálft kg. af nautahakki
  2. Ein dós af Hunts Italian spagettísósu
  3. Þrír bollar af þurrum makkarónum
  4. Tveir bollar af vel rifnum Mozzarella osti
  5. Tólf saxaðar pepperónísneiðar
  6. Tveir og hálfur bolli af vatni
  7. Grænmeti, svo sem laukur eða paprika, eftir smekk

Undirbúningur

breyta
  1. Steikið nautahakkið á pönnu við miðlungshátt/hátt hitastig (7 af 10) uns það er ekki lengur bleikt.
  2. Bætið vatninu og spagettísósunni út á pönnuna og bíðið þar til suðan kemur upp.
  3. Hrærið makkarónunum rólega út í sósuna, lækkið hita niður í miðlungshátt (5 af 10).
  4. Sjóðið í um 10-12 mínútur eða þar til makkarónur eru farnar ekki lengur harðar undir tönn.
  5. Bætið við helmingi af osti og pepperóníi, afganginn ofan á bökuna.
  6. Leyfið að kólna í 5 mínútur.
  7. Njótið.

Athugasemdir

breyta

Uppskriftin er fengin frá Hunts og má finna á dósum af ítalskri spagettísósu þeirra.