Matreiðslubók/Kanilsnúðar
Kanelsnúðar eru hversdagslegir og henta vel með ískaldri mjólk.
Innihald
breyta- 150 gr. smjörlíki
- 150 gr. sykur
- 1 egg
- 350 gr. hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. hjartasalt
- 1 tsk. kardemommudropar
- 2,5 dl mjólk
Aðferð
breyta- Öllu blandað saman og það hnoðað.
- Kökukeflið notað til að slétta deigið út á plötu og ofan á það stráð kanilsykri.
- Deiginu rúllað upp og það skorið niður í passlega þykka snúða.
- Bakað við 180°C í 10-15 mínútur.