Matreiðslubók/Humarsúpa að hættiDúxins
Humarsúpa með karrý
breyta- 12 stk. humarhalar í skel
- Krabbaklær (eingöngu notaðar í soðið)
- 1 laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 2 - 3 msk olía
- 5 sveppir
- 2 msk tómatþykkni
- 1 tsk paprikuduft
- ½ tsk karrý
- 2 msk koníak (má sleppa)
- 1 dl hvítvín
- Ceynna pipar á hnífsoddi
- 1½ l vatn
- 3 tsk. humarkraftur (knorr)
- 1 tsk. kjötkraftur
- Smjörbolla (50 gr smjör og 50 gr hveiti)
- 1 dl rjómi
Aðferð:
Kljúfið humarhalana, fjarlægið görnina og takið fiskinn úr skelinni. Myljið skelina og setjið í pott ásamt krabbaklóm, ef til eru, og steikið í olíu í 3 mín. við vægan hita. Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið niður ásamt sveppum. Bætið lauk, sveppum, tómatþykkni, paprikudufti, karrýi og hvítlauk út í og steikið áfram í 1 - 2 mín. Setjið hvítvín (koníak), vatn, humar- og kjötkraft út í og sjóðið áfram í 30 - 45 mín. Sigtið soðið og þykkið síðan með smjörbollu. Hellið rjóma út í og hrærið í pottinum. Ef humarhalarnir eru stórir kljúfið þá og hafið á þykkt við grannan kvenmannsfingur. Humrinum bætt út í rétt áður en súpan er borin fram. Gott er að þeyta rjóma með þessu og blanda í hann dassi af koníaki.