Matreiðslubók/Bóndakökur
Bóndakökur
- 300 grömm hveiti
- 200 grömm smjörlíki, brætt
- 200 grömm púðusykur
- 75 grömm kókosmjöl
- 2 matskeiðar síróp
- 1 teskeið natron
- Súkkulaðidropar (má sleppa)
- 1 egg
Hrærið þurrefnin saman, hrærið eggið samanvið og að lokum smjörlíkið. Mótið í litlar kúlur úr deginu, setjið á bökunarpappír á plötu (og þrýstið svo súkkulaðidropunum varlega ofan á). Bakið við 180 gráður í 10-15 mínútur. (Fann þetta á www.vefuppskriftir.com)