Matreiðslubók/Amarula ís
(Endurbeint frá Matreiðslubók/Amarula is)
AMARULA ÍS
- 5 dl rjómi
- 1½ dl Amarula líkjör
- 100 g Toblerone, mjög smátt saxað
- 4 msk sykur
- 5 stk eggjarauður
- 5 stk eggjahvítur
Aðferð:
- Þeytið rjómann og geymið í skál.
- Þeytið saman eggjarauður, Amarula líkjörinn og sykurinn þangað til að blandan verður létt og ljós.
- Blandið rjómanum, líkjörsblöndunni og Toblerone-inu saman og hrærið vel (ekki þeyta).
- Stífþeytið svo eggjahvíturnar og blandið þeim saman við blönduna.
- Setjið blönduna í form og inn í frysti.
- Takið út eftir 1 klst. og svo aftur eftir 2 klst. til þess að hræra í.
- Frystist í lágmark 5 tíma.
Gerir u.þ.b 1,5 lítra.
Heimild: http://www2.uppskriftir.is