Kumlanám/Skilgreining á viðeigandi hegðun

Þegar ákveðið hefur verið hvaða hegðun það er sem á að breyta þarf að skilgreina hegðunina á ákveðinn, sýnilegan og mælanlegan hátt til að samræmi sé í notkun aðferðarinnar ef fleiri en einn kennari í hverjum skóla ætla að notast við hana (http://www.usu.edu/teachall/text/behavior/LRBIpdfs/Token.pdf). Einnig mun þessi skilgreining á viðeigandi hegðun skýra fyrir nemendum fyrir hvaða hegðun er hægt að öðlast tákn.