Wikibækur:Um verkefnið
Wikibækur er safn frjálsra kennslubóka. Vefurinn er wiki-vefur, sem þýðir að hver sem er, þar á meðal þú, getur tekið þátt í að skrifa hvaða bók sem er núna með því að smella á Breyta flipann efst á hverri síðu.
Verkefnið er enn lítið vöxtum en við vonum að það vaxi og dafni eins og systurverkefnin með Wikipediu í broddi fylkingar.
Wikibókaverkefnið á ensku var sett á laggirnar þann 10. júlí 2003. Íslenska verkefnið var sett á laggirnar 18. september 2004. Í dag eru 509 síður í vinnslu.
Allt efni Wikibóka fellur undir GNU frjálsa handbókaleyfið. Höfundar halda sæmdarrétti sínum en leyfið tryggir að allar útgáfur sem eru vistaðar á Wikibókum verða ávallt frjálsar til dreifingar og öllum frjálst að afrita þær. Sjá Wikibooks:Höfundarréttur.
Hvað á heima hér og hvað ekki?
Efni sem á heima hér:
- Kennsluefni — bækur sem nota má við kennslu á hinum ýmsu sviðum, t.d. kennsla í eðlisfræði
- Handbækur — bækur sem kenna hvernig má gera hina ýmsu hluti, t.d. matreiðslu
- Skýringarefni — bækur sem innihalda ítarefni og skýringar fyrir aðrar bækur — t.d. skýringarefni fyrir ritið Ríkið eftir Platon.
Efni sem á ekki heima hér:
- Skáldsögur — skáldverk eftir notendur
- Frumrannsóknir — bækur sem innihalda kenningar eða rannsóknir eftir notendur
- Alfræðiefni — til þess er Wikipedia.
- Ritskoðað efni ætlað börnum — bækurnar hér mega að sjálfsögðu vera ætlaðar börnum, en annað efni sem er þess eðlis að geta sært blygðunarkennd barna (bækur um stríð eða kynlíf) verður ekki ritskoðað sérstaklega.