Vefrallý/Mannréttindi og borgaraleg vitund
< Vefrallý
Mannréttindi og borgaraleg vitund
breytaVefrallýið er ætlað nemendum á unglingastigi með það að markmiði að efla borgaralega vitund unglinga og að þeir geri sér grein fyrir að þátttaka þeirra og virðing mannréttinda í samfélaginu skiptir máli.
Verkefnalýsing
breytaVerkefnið má leggja fram sem einstaklingsverkefni að hluta eða öllu leyti og nýta niðurstöðurnar í umræður í stærri hópum. Einnig má leysa verkefnið í hópum og hvetja til umræðna áður en niðurstöður eru settar á blað. Framsetning úrlausna nemenda getur verið með margvíslegu móti allt eftir því hvað kennari ákveður að gefa mikinn tíma í verkefnið.
Upplýsingaveitur
breytaVefur námsgagnastofnunar um borgaravitund og lýðræði [1] Vefurinn barnasáttmálinn [2] Vefsvæði Humanrights.is [3]
Svarið eftirfarandi spurningum og orðið ykkar skoðun.
- Hvað er borgari?
- Hver er ykkar skilgreining á borgaralegri vitund?
- Hvað er lýðræði?
- Hvað teljið þið vera borgaralega þátttöku?
- Hver teljið þið vera grundvallar mannréttindi?
- Nefnið dæmi um brot á mannréttindum samkvæmt mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna.