Vefleiðangrar/Fíkniefni
Vefleiðangur
breytaÞessi vefleiðangur er hannaður fyrir nemendur í 9. - 10. bekk
Kynning
breytaÞað sem þú ætlar að gera í þessu verkefni er að fræðast um fíkniefni í þeim tilgangi að fræða aðra.
Verkefni
breytaVerkefnið er fólgið í því að þú og þinn hópur afla ykkur upplýsinga um gerð og áhrif fíkniefna sem þið síðan setjið upp sem powerpoint kynningu og kynnið fyrir öðrum nemendum. Síðan eigið þið að útbúa veggspjald þar sem þið setjið upplýsingarnar fram með myndrænum hætti.
Bjargir
breytaMyndbandið: Utangarðsunglingar (Hjá námsgagnastofnun.)
Hér er heimasíða félags íslenskra fíkniefnaögreglumanna: www.fikno.is og þar má finna ýmsan fróðleik um fíkniefni og skaðsemi þeirra.
Á síðunni: www.doktor.is/themaflokkar/forvarnir er að finna ýmsar upplýsingar um áhrif og verkan efna.
Á þessari síðu: www.logreglan.is er að finna ýmsan fróðleik um kannabisefni.
Hér er að finna ýmsar upplýsingar um fíkniefni, vímuefni og vímugjafa: www.lydheilsustod.is
Hér er m.a. hægt að finna áhrif fíknefna á miðtaugakerfið: www.forvarnir.is
Hér er nokkuð athyglisverð auglýsing frá lýðheilsustöðinni: www.lydheilsustod.is/media/afengi/rass.mov.mpg
og að lokum er hér dæmi um veggspjöld sem Lýðheilsustöð hefur látið gefa út: www.lydheilsustod.is/utgafa/veggsjold/
Ferli
breyta1)Verkefnið hefst á því að bekkurinn horfir allur saman á myndbandið “Utangarðsunglingar” (sýn.tími: 30 mín).
2)Síðan verður bekknum skipt í 4 hópa og þú færð uppgefið í hvaða hópi þú ert.
3)Hver hópur fær ákveðinn flokk fíkniefna sem hann á að kynna sér vel.
Flokkar fíkniefnanna eru: Amfetamín - Kókaín - Kannabisefni - Ofskynjunarlyf.
Hver hópur á síðan að útbúa powerpoint kynningu þar sem m.a. koma fram neðangreindar upplýsingar ásamt öðru því sem hópurinn vill koma á framfæri:
(a) Hvernig lítur fíkniefnið út
(b) Hvernig áhrif hefur neysla efnisins á líkamann
(c) Hver eru líkamleg einkenni einstaklinga sem hafa neytt þessa efnis.
(d) Hver eru skaðleg áhrif neyslu efnisins á einstaklinginn – bæði líkam-leg og andleg.
(e) Hver eru áhrif langvarandi neyslu efnisins.
(f) Hvert geta einstaklingar snúið sér sem vilja hætta neyslu efnisins en geta það ekki án hjálpar.
4) Að lokum á hver hópur að útbúa veggspjald sem á að vekja fólk til umhugsunar um áhrif fíkniefnisins með það að markmiði að forða fólki frá því að neyta efnisins í fyrsta sinn.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú vinnur verkefnið:
Hvernig lítur fíkniefnið út?
Hvernig líður fólki eftir að hafa neytt þeirra?
Eru einhver útlitseinkenni á neytendum – og þá hver?
Hver eru langtíma áhrif efnanna? Hvað getur þú gert til að koma í veg fyrir að vinir þínir ánetjist fíkniefnum?
Mat
breytaStuðst verður við jafningjamat þar sem nemendur meta vinnu annarra hópa (70%)en einnig mun kennari meta framlag einstaklinga innan hvers hóps (30%).
Niðurstaða
breytaAð loknu ofangreindu verkefni ættuð þið að vera nokkuð fróðari um fíkniefni og áhrif þeirra.
Ef þið hafið áhuga á að fræðast meira þá getið þið t.d. nálgast neðangreint efni sem er til á flestum bókasöfnum og fjallar um fíkniefni og forvarnir.
Fíkniefni og forvarnir. Útgefandi: Fræðslumiðstöð í fíknivörnum.
Dagbók dauðans. Höfundur: Ólafur Geirsson
Steinar er dáinn. Höfundur: Vigdís Stefánsdóttir
Dýragarðsbörnin. Höfundur: Kristjana F.
Engill afkimans. Útgefandi: P.E.A.C.E. útgáfan
Ekkert mál og Eftirmál. Höfundar: Njörður P. Njarðvík og Freyr Njarðarson
Íslenskir utangarðsunglingar. Höfundur: Sigurður Á. Friþjófsson
Ekki ég kannske þú. Útgefandi: Reykjavíkurborg (sýn tími 60 mín)
Krókódílar gráta ekki. Höfundur: Elías Snæland Jónsson
Frá fíkn til frelsis. Höfundur: Tholly Rósmundsdóttir
Dansað við dauðann. Höfundur: Ragnhildur Sverrisdóttir
Fermingarblað. Útgefandi: Átak til ábyrgðar
Vetrarvík, Glötuð og John-John. Höfundur: Mats Wahl
Falskur fugl. Höfundur: Mikael Torfason
Dís. Höfundar: Birna Anna Björnsd., Oddný Sturlud. Silja Hauksd.
Martin og Viktoría. Höfundur: Klaus Lynggaard
Maja, hvað er ferðalag? Höfundur: Regine Schindler
Algjörir byrjendur. Höfundur: Rúnar Ármann Arthúrsson
Annalísa 13 ára. Höfundur: Tove Ditlevsen
Himnaríki fauk ekki um koll. Höfundur: Ármann Kr. Einarsson Hvít jól. Höfundur: Ragnheiður Jónsdóttir
Manndómur. Höfundur: Andrés Indriðason Stelpur í stuttum pilsum. Höfundur: Jenna Jensdóttir og Hreiðar Stefánsson
Útilegubörnin í Fannadal. Höfundur: Guðmundur G. Hagalín
Aldrei aftur. Höfundur: Þórey Friðbjörnsdóttir Ekki kjafta frá/Og hvað með það. Höfundur: Helga Ágústsdóttir
Leðurjakkar og spariskór. Höfundur: Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Höfundur
breytaHulda Hauksdóttir. Fyrsta útgáfa þessa vefleiðangurs var gerð í sept 2006.