Upplýsingatækni/Að nota Stellarium
Leiðbeiningar fyrir Stellarium
breytaStellarium er opið og ókeypis stjörnufræðiforrit og er tilvalið til að vekja áhuga yngri, sem eldri kynslóðarinnar, á undrum himinsins.
Forritið birtir í þrívídd raunsanna mynd af himninum og kemur því sem næst að horfa á himinninn berum augum.
Leiðbeiningarnar byggjast á upplýsingum frá eftirfarandi vefsíðum:
• http://www.spice.wa.edu.au/sites/default/files/A%20Guide%20to%20Using%20Stellarium.pdf
Hvar skal byrja
breytaSæktu hugbúnaðinn http://stellarium.astro.is/ og settu hann upp á tölvunni þinni.
Aðgerðir
breytaÞegar þú opnar Stellarium í fyrsta skipti færðu upp 60° útsýni yfir himininn eins og hann sést frá París um þessar mundir.
Neðst á skjánum sjást upplýsingar um staðsetningu, dagsetningu og tíma
Bókstafurinn í miðjunni segir til um þá höfuðátt sem þú snýrð að.
Ef þú vinstrismellir með músinni á valið fyrirbæri birtast nánari upplýsingar í efra vinstra horni skjásins. Til að láta þessar auka upplýsingar hverfa hægrismellir þú með músinni.
Færðu músina í lægra vinstra horn tölvuskjásins og birtist þá tvær aðal valslár Stellarium. Ef þú færir músina frá hverfa slárnar aftur.
Hægt er að nota örvarnar á lyklaborðinu til að fara til hliðar, upp eða niður. Einnig er hægt að vinstrismella á músina, halda hnappinum inni og færa músina til hliðar, upp eða niður. Hægt er að súmma að himninum eða súmma út.
Flýtileiðir
breytaSpace takki: Valið fyrirbæri fært í miðju skjásins
/ : Súmmar að völdu viðfangsefni
\ : Fer til baka í 60° útsýni
F6: Breyta staðsetningu og tíma
Hægt er að breyta staðsetningu og tíma annaðhvort með því að ýta á F6 hnappinn á lyklaborðinu eða með því að velja táknmynd Staðsetningarglugga í valmyndinni.
Sláðu inn nafn á viðkomandi borg í leitarsvæðið, veldu svo borgina og hakaðu í „Vistað sem sjálfgefið“ svo að forritið muni staðsetninguna næst þegar þú ræsir Stellarium. Smelltu á x-ið í hægra efra horni til að loka glugganum.
Núna ættir þú að sjá nýja staðsetningu í neðra vinstra horni á skjánum.
Smelltu á F5 til að breyta tíma og dagsetningu.
Stellarium leyfir okkur að ráðsgast með tímann.
Smelltu þrisvar sinnum á L til að sjá stjörnurnar hreyfast um himininn.
Smelltu á K til að fara aftur á eðlilegan hraða
Smelltu á J endurtekið til að láta timann færast aftur
Smelltu á 8 til að endurstilla á núverandi dag og tíma
Smelltu á 7 til að stoppa tímann
Fylgstu með tímanum á valslánni þegar þú prófar að leika þér að breyta honum
Það er hægt að fá mismunandi grindur eða línur og merkingar birtar á himninum.
Smelltu á e til að kveikja á miðbaugsmöskva
Smelltu á Z til að fá sjónbaugshnit
Hægt er að kveikja og slökkva á stjörnumerkjalínum með b og c
Nöfn stjörnumerkjana eru birt með því að smilla á v
Myndræn framsetning stjörnumerkjanna er hægt að fá fram með því að smella á r
Hægt er að kveikja og slökkva á mismunandi merkjum fyrir Stjörnur, Geimþokur eða Reikistjörnur með því að smella á F4.
Áherslu á Nöfn og Merkingar má breyta með því að færa stikuna aftan við merkingarnar til vinstri eða hægri
Leit
breytaSmelltu á Ctrl + F til að leita að viðfangsefni. Sláðu inn leitarorð og smelltu á enter.
Smelltu svo á / til að súmma inn að viðfangsefninu.
Allar ofangreindar aðgerðir er hægt að framkvæma á valslánum, ef flýtilyklarnir skyldu gleymast