Tölvunarfræði/Verkefnalausnir
Námskeiðið Verkefnalausnir er verklegt námskeið sem þjálfar nemendur í getu til að beita grunnhugtökum úr tölvunarfræði á hagnýt verkefni.
Lýsing
breytaÍ námskeiðinu Verkefnalausnir við HR eru nemendur þjálfaðir í að beita grunnþáttum tölvunarfræðinnar á hagnýt verkefni.
Námskeiðið tekur á ýmsum þáttum tölvunarfræðinnar eins og t.d:
- Forritun
- Strjálli stærðfræði
- Rökrásum
- Verkefnavinnu
- Ritun
- Kynningu
- Lausn tæknilegra verkefna
- Skýrslugerð
Kennslan fer fram eingöngu í lotum þar sem nemendur leysa ýmisskonar verkefni, með aðstoð leiðbeinenda. Hverju verkefni er svo skilað í lok hvers tíma.
Verkefnin eru unnin í hópum. Þannig ná nemendur að þjálfast í að vinna með öðrum, leysa verkefni og búa til verkefnaskýrslur.
Kennsla
breytaVerkefni
breytaTvennskonar verkefni eru unnin í tímum, annarsvegar skýrsluverkefni og hinsvegar rafræn verkefni, auk kynningar sem nemendur þurfa að halda um valin verkefni sem þeir hafa gert í tímum.
Skýrsluverkefni:
breytaNemendum er skipt í 4 manna hópa. Nemendur fá í hendurnar verkefni sem inniheldur nokkrar þrautir/verk sem þarf að leysa.
Þegar lausn verkefnis liggur fyrir útbýr hópurinn skýrslu sem skilað er rafrænt á pdf formi inn í myschool skólakerfið.
Mikið er lagt upp úr því að allir meðlimir hópsins sýni fram á skilning sinn á viðfangsefninu með rökstuðningi í skýrslunni.
Rafræn verkefni:
breytaNemendum er skipt í 2 manna hópa. Nemendur fá í hendurnar verkefni sem oftast eru forritunarverkefni eða önnur verkefni sem leyst eru rafrænt í þar til gerðum forritum/heimasíðum.
Öll forritunarverkefni eru unnin í C++ forritunarmálinu.
Mikið er notast við skil í gegnum Mooshak þar sem sjálfvirk yfirferð verkefna er framkvæmd um leið.
Kynning:
breytaNemendur halda tvær kynningar í sitt hvorum hópnum. Hópurinn velur sér efni, útbýr glærur og kynningarefni og flytur síðan kynninguna fyrir samnemendur sína og kennara. Nemendur og kennarar leggja síðan mat á kynningarnar.
Námsmat
breytaEftirfarandi þættir byggja upp lokaeinkunn námskeiðsins:
- Skýrsluverkefni
- Rafræn verkefni
- Kynning og mat á kynningu
- Jafningjamat (nemendur meta framlag hópmeðlima)
- Munnlegt lokapróf
Nemendur þurfa að standast munnlegt lokapróf til að standast námskeiðið.
Heimildir
breytaEfni er fengið á námskeiðsvef Verkefnalausna á innraneti HR.
"Ehrafnsson (spjall) 19. janúar 2013 kl. 11:38 (UTC)" "Saevare12 (spjall) 19. janúar 2013 kl. 11:42 (UTC)"