Námsefni/Námsefni um hljóðfæraflokkana

Námsefni um hljóðfæraflokkana



Um námsefnið


Þetta námsefni er ætlað fyrir 9 til 11 ára nemendur í tónmenntakennslu í grunnskólum.

Markmiðið með þessu námsefni er að nemendur kynnist hljóðfæraflokkunum að eigin raun.



Ferli


  • Í stórri sinfóníuhljómsveit er fjöldinn allur af hljóðfærum og skiptast þessi hljóðfæri í fjóra

hljóðfæraflokka, strengjahljóðfæri, málmblásturshljóðfæri, tréblásturshljóðfæri og ásláttarhljóðfæri.

Hér á myndinni fyrir neðan eru nokkur hljóðfæri og vandinn er sá að við þurfum að finna út hvaða hljóðfæraflokki

hvert þessara hljóðfæra tilheyrir.

Vefleiðangur


  • Áður en lengra er haldið skulum þið bregða ykkur í vefleiðangur og kynna ykkur málið enn frekar.

Með því að smella hér komist þið inn á vefleiðangurinn.


Mat


  • Þegar þið eruð búin að kynna ykkur hljóðfæraflokkana og þau hljóðfæri sem tilheyra þeim þá ættuð

þið að geta sagt til um hvaða hljóðfæraflokkum hljóðfærin á myndinni tilheyra.

Það gerið þið með því að smella hér og svara nokkrum spurningum.


Höfundur


Ívar Sigurbergsson. Höfundur kennir upplýsingatækni og tónmennt í Lindaskóla.

Tónmenntavefur Lindaskóla

Hér er svo vefleiðangur sem ég vann fyrir kennara í Ölduselsskóla um Hvali og hvalveiðar