Mexíkósk kjúllasúpa frá Sölvabakka
Skref 1 4 kjúklingabringur skornar í bita og snöggsteiktar með salti og pipar, geymt á meðan súpan er löguð.
Skref 2
- 1 púrrulaukur
- 2 gular paprikur
- 2 rauðar paprikur / eða 1 rauð og 1 appelsínugul
- 5 hvítlauksrif-smátt söxuð
- 4 gulrætur
- 1 msk olía
- Þetta er brytjað frekar gróft og sett í pott og látið krauma í nokkrar mínútur.
Skref 3
- 1,5 l vatn
- 4 dl mjólk
- 400 gr rjómaostur
- 3 stk svínakraftsteningar
- 2 stk kjúklingakraftsteningar
- 1/4 l matreiðslurjómi
- 2 tsk karrý
- 2 tsk paprikuduft
- 1 dós nýrnabaunir (má sleppa!)
- 1 dós niðursoðnir tómatar í bitum
- svartur pipar eftir smekk
- chilipiparduft eftir smekk
- 1 flaska chilitómatsósa (gott að nota þessa í glerflöskunum frá Heinz) sett út í súpuna síðast eftir að allur rjómaosturinn er bráðnaður
Látið sjóða í um 50 mínútur og þá er kjúklingnum bætt í og látið krauma í ca. 10-15 mínútur. Athugið að þennan súpugrunn má gjarnan nota í fiski- og sjávarréttasúpur, jafnvel gúllassúpu (naut, ær, folald). Berið fram með sýrðum rjóma, tortillaflögum (chili, osta eða venjulegum) og rifnum osti. Einnig gott að hafa nýbakað brauð með.