Litahringur
<- Aftur í efnisyfirlit fyrir Wikibækur kennaranema |
Höfundur: Gunnar Jóhannsson
Litahringur
breytaLitahringurinn er samsettur úr frumlitunum (primary colours). Johannes Itten setti litahringinn upp í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag. Frumlitirnir eru þrír gulur, rauður og blár. Frumlitirnir eru einstakir, þá er ekki hægt að blanda úr öðrum litum. Þegar gulum og rauðum er blandað saman kemur út appelsínugulur, þegar rauðum og bláum er blandað saman kemur út fjólublár og þegar bláum og gulum er blandað saman verður útkoman grænn litur. Heitir og kaldir litir, blár er dæmi um kaldan lit, þeir litir sem eru sömu megin á litahringnum og blái eru kaldir. Rauður er dæmi um heitan lit, þeir litir sem eru sömu megin á litahringnum eru heitir litir þ.e. frá gulum til fjólubláa.
Blöndun og styrkleiki lita
breyta
Andstæðulitir og optisk áhrif
breytaAndstæðulitir, þeir litir sem eru á móti hvor öðrum á litahringnum eru andstæðulitir t.d. gulur og fjólublár, grænn og rauður eða appelsínugulur og blár. Þegar andstæðulitir eru settir saman á myndflöt virkar það þannig á augað að myndflöturinn virðist dansa eða hreyfast fyrir augum manns. Það verða til svokölluð optisk áhrif. Ungverjinn Victor Vasarely er þekktur op-listamaður. Hörður Ágústsson var einnig vel að sér í optiskum áhrifum myndflatarins og gerði mörg slík myndverk.
Jarðlitir
breytaÞegar frumlitunum sjálfum er blandað saman verða til svokallaðir jarðlitir, þá er verið að tala um t.d. mosagrænann, súkkulaðibrúnann, rauðbrúnann og fleiri liti sem verða til við blöndun frumlitanna.
Eins og getið hefur verið um, eru jarðlitirnir blandaðir úr frumlitunum þremur,(Primary colors). Einnig er hægt að blanda svartan úr frumlitunum, það er einmitt það sem vatnslitamálarar gera nær undantekningalaust. Í vatnslitamálun er hvítur og svartur yfirleitt ekki notaðir, vatnslitapappírinn kemur í stað hvíta, vatnið gerir litina transparent, þvi meira vatn þvi gegnsærri áferð, síðan er svartur blandaður úr frumlitunum og notaður þannig. Ef hvítur og svartur eru notaðir, þ.e.litir úr túpum verður útkoman oft muskuleg í vatnslitamálun.
Impressionistar
breytaDæmi um litaglaða myndlistarmenn eru t.d. Impressionistarnir, sem voru upp á sitt besta í Frakklandi um 1870, þeir skelltu oft hreinum lit beint á léreftið og máluðu oft myndir af sömu stöðum við mismunandi veður og birtuskilyrði til þess að reyna að fanga augnablikið. Þekktir Impressionistar eru t.d. Claude Monet sem þekkur er fyrir vatnaliljumyndir sínar og Impressionist sunrise, Berthe Morisot sem var þekt fyrir myndir af fólki þar á meðal konum og börnum, Vincent Van Gough, þekktur fyrir t.d. myndina af kartöfluætunum og sólblómamyndir sínar. Paul Cezanne sem þekktur er m.a. fyrir frábærar uppstillingar, sjálfsmyndir og myndina af mönnum að spila á spil
Litir Dýra og náttúru
breytaþað er umhugsunarefni með litina í náttúrunni og dýraríkinu. Ef þið skoðið myndirnar hérna fyrir ofan sjáið þið að sum dýrin eins og páfagaukarnir og rauðu gullfiskarnir leggja alla áherslu á að vera litríkir og áberandi í umhverfinu það þjónar sjálfsagt þeirra tilgangi. Á meðan önnur dýr gera allt sem í þeirra valdi stendur til að samlagast og renna saman við unmhverfi sitt. Sjáið t.d. myndina af íkornanum og myndirnar af flatfiskunum, þetta er athyglisverður og líkast til nauðsynlegur þáttur í náttúrunni þetta vekur upp margarnspurningar og vangaveltur t.d. af hverju eru gullfiskarnir svona áberandi en flatfiskarnir ekki?
Krossapróf um litahringinn
breyta
Sama krossapróf á Hot Potatos formi:
Heimildir
breyta- Consultant editors Smith, Stan, Professor Holt, H.F.Ten, Foreword Hogarth,Paul "the ARTIST´S MANUAL"
- Parramón, J.M., The Complete Book of Watercolours
Ítarefni
breyta- http://susanne.list.person.emu.dk/Subtraktivtiv.htm
- http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=483
- http://en.wikipedia.org/wiki/Impressionism
- http://wayback.vefsafn.is/wayback/20050301202601/www.listasafnreykjavikur.is/Kjarvalsstadir/syningar/hordur.shtml
- http://commons.wikimedia.org/wiki/Image:Hungary_pecs_-_vasarely0.jpg
- http://commons.wikimedia.org/wiki/Colors