Inkscape
<- Aftur í efnisyfirlit fyrir Wikibækur kennaranema |
Inkscape er svokallað „vektorteikniforrit“.
Nýjasta útgáfan af Inkscape er 4.8
Inkscape vistar myndir á svg formi. Núna eru myndir á vefnum aðallega á gif, jpg eða png formi. Slíkar myndir verða óskýrari ef þær eru stækkaðar eða minnkaðar mikið og það er erfitt að breyta t.d. ef breyta á skýringartexta sem er inn á mynd. Vektorteikningar eins og myndir á svg formi eru alltaf jafnskýrar og það er auðvelt að breyta hluta af mynd t.d. breyta lit á einhverjum hlut í stærri mynd.
Það er því hægt að setja saman myndir úr einingum og sérstakt almenningssafn er á vefnum openclipart.org fyrir myndir á svg formi. Hér er dæmi um nokkrar svg myndir sem búnar hafa verið til í Inkscape. Taktu eftir að myndirnar eru jafnskýrar hvort sem þær eiga að birtast stórar eða litlar.
Dæmi um myndir sem teiknaðar eru í Inkscape
-
Kort af Íslandi
-
Engill í sveitastíl
-
Wikivagninn
-
Ofauðgun
-
Eplatré og ófreskja
-
Grýla með óþægu börnin
-
Hvítur fuglsungi
-
Reykingar bannaðar
-
Skýringarmynd í eðlisfræði
-
Geiger teljari
-
Hormónar
-
Loðnugöngur á Íslandi
-
þorskur
-
Lífshlaup ála
-
Gæðastjórnun
-
Stærðfræðiteikning
-
Hverfi í Reykjavík
-
Jólasnót
Inkscape verkfærabox
breytaHér er skjámynd úr Inkscape sem sýnir hvernig hægt er að stilla hve gegnsæir litir eru, hvernig hægt er að teikna form sem eru sameinuð eða sneidd í sundur, stjörnur, spírala, teikna boglínur og skrifa inn texta, láta texta fylgja boglínum o.fl.