Hreindýraveiðar á Íslandi
Höfundur: Dagný Rut Kjartansdóttir
Almennt um hreindýr
breytaHreindýr (Rangifer tarandus) eru í flokki hjartardýra. Hreindýr labba um í hjörðum en það er mismunandi eftir árstíðum hversu mörg dýr eru í hjörð[1].
Flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Undirfylking: Hryggdýr (Vertebrata)
Flokkur: Spendýr (Mammalia)
Ættbálkur: Klaufdýr (Artiodactyla)
Undirættbálkur: Jórturdýr (Ruminantia)
Ætt: Hjartarætt (Cervidae )
Ættkvísl: Hreindýr (Rangifer)
Tegund: Rangifer tarandus
Hreindýraveiðar
breytaÞað þarf að huga að ýmsu áður en sótt er um leyfi til veiða. Veiðimaðurinn þarf að hafa skotvopnaleyfi B og gilt veiðikort. Það verður að fara á námskeið til að öðlast þessi réttindi.
Hvert ár er gefinn út hreindýrakvóti sem segir til um hvað má veiða mikið af dýrum. Svæðin eru skipt frá 1 til 9 og er sérstakur kvóti fyrir hvert svæði. Þegar sótt er um leyfi þá verður umsækjandinn að sækja um tarf eða kýr og velur síðan svæðið. Nöfn umsækjenda fara í pott og dregið er úr umsóknum í beinni útsendingu á netinu. Reglur eru um útdrátt dýra og hægt er að finna hann hérna
Hreindýraveiðin á tarf er frá 15. júlí - 15. september en kýrnar má veiða á tímabilinu 1. ágúst - 20. september.
Ef umsækjandi fær úthlutað hreindýri þá verður hann að standast skotpróf fyrir 1. júlí hjá viðurkenndu skotfélagi. Það eru 22 skotfélag víðsvegar um landið með 97 prófdómurum sem geta séð um verklegt próf.
Hreindýraleiðsögumaður
breytaLögum samkvæmt skal veiðimaður ráða sér leiðsögumann áður en haldið er til veiða. Hægt er að finna lista með leiðsögumönnum inn á vef umhverfisstofnunar. Hlutverk leiðsögumanns er að fylgja veiðimönnum á veiðislóð og sjá til þess að veiðar fari fram með löglegum hætti og að dýrið verði fellt á mannúðlegan hátt. Hann skal einnig passa uppá alla öryggisþætti er við kemur veiðunum, tryggja að bakland sé gott og ýmislegt fleira. Ef veiðimaður hittir ekki nægilega vel og dýrið særist skal leiðsögumaður fella dýrið á skjótann og öruggann hátt.
Krossapróf
breyta
Tenglar og heimildir
breyta[1] Hreindýr inn á umhverfisstofnun
- ↑ „Hreindýr“. www.na.is. Sótt 25. febrúar 2021.