Þekkja sólkerfið okkar og nokkur einkenni þess
Yfirlit um sólkerfið
breytaYfirlit um sólkerfið
breyta- Innri reikistjörnur: Merkúr, Venus, Jörðin, Mars
- Aðallega úr ýmsum bergtegundum
- Smástirnabeltið
- Ytri reikistjörnur: Júpiter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus og Plútó.
- Gasrisar: Yfirborð aðallega úr léttum lofttegundum.
Ein góð leið til að muna rétta röð reikistjarnanna frá sólu er þessi setning: My Very Educated Mother Just Served Us Nice Pizza.
- Merkúr, Venus, Earth(jörðin), Mars, Júpiter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus og Plútó
Innri reikistjörnurnar
breytaMerkúríus: Hraðfara sendiboði
breyta- Næst sólinni.
- Árið þar er 88 jarðardagar.
- Brautin næstum þrisvar sinnum minni en braut jarðar.
- Mariner 10 flaug framhjá 1976.
- Landslag: Alsett gígum, löng og brött klettabelti, miklar sléttur( hraun runnið fyrir milljörðum ára)
- Möndulsnúningur hægur, einn hringur á 59 jarðardögum.
- Hiti –170°C og upp í 400°C
Venus: Ástarstjarna og gróðurhús
breyta- Stundum bjartasti himinhnötturinn.
- Morgunstjarna eða kvöldstjarna.
- Nánast sama þvermál, massi og þéttleika og jörðin.
- Hulin skýjaþykkni. (gulleit ský)
- Skýin úr brennisteinssýru.
- Lofthjúpur úr koltvíoxíði.
- Hiti upp í 480°C
- Mikil gróðurhúsaáhrif
- Ekkert vatn núna: Líklegt að hafi verið áður fyrr. Leifar af strandlínum og sjávarseti.
- Mikill þrýstingur
- Landslag:
- Gljúfur og gígar
- Miklar sléttur.
- Há fjöll (Eftir eldgos fyrir löngu)
- Snúningur öfugur (sólin gengur frá vestri til austurs)
- Möndulsnúningur hægur ( einn hringur á 243 jarðardögum)
Mars: Ryðrauða reikistjarnan
breyta
- Hefur verið könnuð töluvert
- Jarðvegur líkur á jörðinni
- Þó er húð á jarðveginum sem er í raun ryð(Járnoxíð)
- Ekkert fljótandi vatn
- Frosið vatn í jökli kringum pólana.
- Áður fyrr sennilega vatn (Kom úr vatnsgufu frá eldfjöllum)
- Fjögur mjög stór óvirk eldfjöll
- Ólympusfjall sennilega stærsta fjall í sólkerfinu.
- 3x hærra en Everestfjall.(ca. 27 km)
- Miklir sandstormar þyrla upp ryki.
- Gashjúpur mest úr koltvíoxíði.
- Nánast helmingi minni en jörðin.
- Tvö tungl: Deimos og Fóbos “ótti” og ”ógn”
Smástirnabeltið
breyta- Smástirni á braut um sólu milli Mars og Júpiters.
- Gerð úr grjóti og málmum.
- Flest smá og óregluleg
- Nokkur stór. Seres stærst 1000 km í þvermál.
- Ekki öll smástirni úr smástirnabeltinu.
Ytri reikistjörnur og annars konar
breytaRisinn Júpiter: Næstum því sól
breyta- Hægt að raða hundrað jörðum utan um Júpiter.
- Júpiter keppinautur sólarinnar.
- (Hefði getað orðið sól?)
- Að mestu gerður úr Vetni og Helíumi.
- Erfitt að greina nákvæmt yfirborð því það er úr gasi
Júpíter-framhald
breyta- Skýin mynda ljósa og dökka borða á víxl
- Rauði bletturinn
- Í blettinum er heljarmikill stormur-hvirfilbylur
- Svo stór að hann gæti gleypt tvær jarðir
- Verið til í minnsta kosti 300 ár
- Júpiter hefur um sig segulhvolf
- Nær milljónir km út fyrir reikistjörnuna
Tungl Júpíters
breyta- Júpiter hefur 63 fylgitungl
- Stærstu tunglin eru kennd við Galíleó Galílei sem sá þau fyrstur manna 1609 þegar hann beitti fyrstur manna sjónauka til rannsókna á himninum
- Jó: Innsta tunglið-rauðgult og gult (eins og pepperónípizza)
- Ungt og virkt tungl
- Evrópa: Þar er eldfjall sem spýr frá sér vatni og ammóníaki.
- Ganýmedes: Stærsta tungl sólkerfisins.
- Merki um jarðskjálfta.
- Kalistó: Mikið af gígum, meira en á öðrum hnöttum í sólkerfinu.
Satúrnus: Heimur hringjanna
breyta- Frægur fyrir hringina
- Hringirnir að mestu úr ísögnum og ískögglum.
- Hringirnir a.m.k sjö.
- Satúrnus snýst hratt um möndul sinn.
- Flatari við pólana
- Aðallega gerður úr vetni og helíumi
- Miklir og sterkir vindar
- Skýin mynda marglita borða eins og á Júpiter.
- Segulhvolfið stórt.
- Nú talin vera með 60 tungl
- Títan stærst ( Þó minna en Ganýmedes á Júpíter)
- Eina tunglið sem hefur verulegan gashjúp.
Úranus: Reikistjarna frá átjándu öld
breyta- William Herchel fann Úranus árið 1781
- Úranus er tvöfalt lengra frá sól en Satúrnus.
- Sést sjaldan með berum augum frá jörð.
- 27 tungl
- Gashjúpurinn sem hylur hann er blágrænn
- Ský úr metani, helíumi og vetni
- Hitinn efst í skýjunum getur farið í –220°C
- Úthaf á Úranusi sem er 8000 km á dýpt og umlykur kjarna sem er ýmist úr bráðnu eða storknuðu bergi.
- 10 hringir utan um Úranus úr metanís
- Möndulhalli flestra reikistjarna er nærri lóðréttur miðað við sólbaug. Undantekningin er Úranus sem segja má að rúlli áfram líkt og keilukúla umhverfis sólina.
Neptúnus: Reikistjarna stærðfræðingsins
breyta- Úranus hegðaði sér ekki eins og búist var við.
- Reiknað út að önnur reikistjarna væri fyrir utan Úranus.
- Neptúnus fannst svo árið 1846 og var á þeim stað sem búið var að reikna út að hann væri.
- Úranus og Neptúnus kallaðir tvíburarisarnir
- Svipaðir að stærð og massa.
- Stór og bláleit reikistjarna.
- Þar gæti verið haf úr vatni og fljótandi metani og undir því sé bergkjarni
- Metanský í lofthjúpi með helíumi og vetni
Plútó: Dvergreikistjarna (ekki reikistjarna)
breyta- Plútó er næst stærsta þekkta dvergreikistjarnan í sólkerfinu, miklu minni en reikistjörnurnar átta.
- Sjö fylgitungl í sólkerfinu stærri en Plútó, þ.e. tunglið okkar, Íó, Evrópa, Ganýmedes, Kallistó, Títan og Tríton.
- Plútó líkist á margan hátt síðastnefnda tunglinu að stærð, efnasamsetningu og má vera að uppruni þeirra sé af sama toga.
Smáhlutir á víð og dreif
breytaHalastjörnur
breyta- Uppruni halastjarna í Oort- skýinu 10 billjón km frá sólinni.
- Í Skýinu er mikið magn af ís, gasi og ryki.
- Stundum toga stjörnur “snjóbolta” út úr skýinu og hann fellur svo í átt til stjörnunnar. Þetta er halastjarna.
- Þegar hún nálgast sólina hitnar hún og hluti af ísnum bráðnar og gufar upp og gasið og rykið hitnar líka.
- Þetta myndar ský utan um kjarnann og kallast það hjúpur.
- Kjarninn og hjúpurinn mynda höfuð halastjörnunnar.
- Þegar halastjarnan kemur enn nær sólu þá blása sólvindar o.fl hjúpnum út í langan hala sem vísar alltaf burt frá sólinni.
- Umferðatími halastjarna er mislangur.
- Frægar halastjörnur:
- Halley-halastjarnan (Kemur reglulega, frekar oft)
- Hale-Bobb
Stjörnuhrap
breyta- Loftsteinn sem er að brenna upp í lofthjúpi jarðar.
- Flestir steinarnir brenna upp til agna en sumir lenda á jörðinni
Heimildir
breytaSól, tungl og stjörnur. Kafli 3-3 til 3-6.